
Fáðu skýrleika, festu og fókus í leiðtogahlutverki þínu
- með Ragnheiði H. Magnúsdóttur
Námskeiðið er byrjað.
Þú getur skráð þig á biðlista ef þú vilt vera með næst.

Á þessu fjögurra vikna ókeypis námskeiði færðu aðstoð við að ná fókus, forgangsraða og setja verkefni í skýran og framkvæmanlegan ramma. Þú lærir að greina hvað skiptir raunverulega máli, miðla því á skýran hátt og fá fólkið þitt með þér.
Hvort sem þú stýrir teymi, verkefni eða breytingum, færðu festu og markvissan stuðning til að leiða af auknu öryggi, með yfirsýn og árangri.
Námskeiðið er netnámskeið sem er kennt frá 23. febrúar til 24. mars næstkomandi. Mjög einfalt er að fara í gegnum námskeiðið með vinnu.

Fyrir metnaðarfulla leiðtoga og stjórnendur sem eru að byggja upp teymi eða fyrirtæki, sem vilja skýrari sýn, skarpari forgangsröðun og árangursríkari leiðir til að fá fólkið sitt með sér.
Námskeiðið hentar þeim sem hafa fengið nóg af ringulreið og vilja leiða af festu og fókus.
Hæ!
Ég heiti Ragnheiður H. Magnúsdóttir.
Ég hef starfað sem stjórnandi og frumkvöðull í krefjandi umhverfi þar sem hraði, ábyrgð og mannleg samskipti skarast daglega.
Ég þekki það af eigin raun að vera með mörg verkefni í gangi, teymi sem þarf stuðning og mikilvægar ákvarðanir sem bíða á meðan efi, álag og óvissa bankar upp á.
Ég byggi á reynslu minni af stjórnun, nýsköpun og mannlegum samskiptum og vil styðja fólk við að leiða af öryggi og með fókus á árangur.

Þú ert með margar hugmyndir, en vantar skýra stefnu og forgangsröðun
Þú vilt leiða af heilindum, en efast stundum um eigið hlutverk og áhrif
Þú finnur að ábyrgðin er þín, en stuðningurinn oft af skornum skammti
Þú ert óviss um hvert næsta skref ætti að vera